Fasteignaleitin
Skráð 24. júní 2026

Hverafold 30

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
198.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
134.800.000 kr.
Fermetraverð
677.728 kr./m2
Fasteignamat
137.700.000 kr.
Brunabótamat
117.050.000 kr.
Mynd af Ingólfur Geir Gissurarson
Ingólfur Geir Gissurarson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1988
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2042303
Landnúmer
110205
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegt
Raflagnir
Upphaflegt
Frárennslislagnir
Upphaflegt
Gluggar / Gler
Upphaflegt
Þak
járn+pappi frá 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
steypt verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
NÝTT Í SÖLU - OPIÐ HÚS. 

HVERAFOLD 30.  FALLEGT, VELSKIPULAGT ENDARAÐHÚS Á EINNI HÆÐ INNST Í LOKAÐRI GÖTU Á FRÁBÆRUM STAÐ Í GRAFARVOGI.  

Opið hús Sunnudaginn 28.júní 2026,  kl. 17,00 - 18,00   Ingólfur Gissurarson lg.fs. sýnir S:896-5222  ingolfur@valholl.is 

Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími:588-4477 og Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari, síðan 1989, sími:896-5222, kynna: Nýkomið í einkasölu eitt af þessum eftirsóttu raðhúsum á einni hæð við Hverafoldina í Grafarvogi.  Einstaklega huggulegt og velskipulagt 198,9 fm endaraðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Frábær staðsetning innst í lokaðri götu á rólegum, eftirsóttum stað í Grafarvogi. Örstutt í skóla, leikskóla, verslun, íþróttir, sundlaugina og fl.  4 svefnherbergi (tvö reyndar sameinuð í eitt í dag). Góðar stofur með arin, afgirtur gróðursæll garður með steyptri verönd og stéttum. 


SKIPULAG: 
Húsið er mikkð til í upprunalegu standi að innan en heillegt. Innréttingar, skápar og innihurðir eru upprunalegar, sérsmíðaðar af trésmiðjunni Borg (Sauðárkróki) á sínum tíma.  
Forstofa með skápum. Rúmgott forstofuherbergi með skápum innaf forstofu og einnig gestasnyrting með vaskinnréttingu.  Hol.  Búr innaf holi með litlum glugga og hillum.  Eldhús með góðum borðkrók, velskipulögð innrétting teiknuð af Öglu Mörtu innanhúsarkitekt, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél (AEG) fylgja.  Miele eldri tæki.  Sjónvarpshol eða borðstofa við hlið eldhúsins og svo eru tvö þrep niður í rúmgóða stofu sem er með arin.  Útgengt útá steypta suðvestur verönd, mjög skjólgóða og fallegan garð.  Lítil pútt-flöt fyrir golf í garðinum. Afgirtur garður með fallegum fjölbreyttum gróðri og stórum trjám.  Tveimur þrepum neðar en stofan er svo garðstofa eða borðstofa.   Svefnálma: 3 svefnherbergi, tvö þeirra eru nú sameinuð í eitt stórt, en auðvelt að breyta aftur.  Skápar í hjónaherberginu og þar er útgengt útá veröndina / garðinn.  Baðherbergi flísalagt með góðri sturtu, baðkari, skápum og innréttingu með tveimur vöskum og vegghengdu salerni. Opnanlegur velux þakgluggi á baðinu.  Bjartur þakgluggi á baði.  Þvottaherbergi með hillum.  Innbyggður góður bílskúr með hillum, geymslulofti, vatni, rafmagni og gönguhurð á bílskúrshurðinni.  Tengill fyrir rafbílastöð.  á Svefnherbergisgangi er niðurdraganlegur stigi uppá rúmgott geymsluloft.  Ljósleiðari. Hellusteypt bílaplan og aðkoma að húsi með hitalögn undir, Góð verönd framantil í austur (morgunsól).  Húsið er skuldlaust og gæti losnað fljótlega.  
Gólfefni= Flísar á forstofu, gestasnyrtingu, garðstofu og baðherberginu. Málað gólf í þvottahúsi. Gegnheilt ljóst eikarparket á öðrum gólfum. 

ANNAÐ: Eftirfarandi upplýsingar eru frá seljendum= Nýlegt þakjárn og pappi (2021), Efni í loftaklæðningu á baði (sem er farin að láta á sjá) er til uppi á háalofti, Frystir í eldhúsi er lélegur, innfledir hátalarar í eldhúsi og utanáliggjandi í lofti í stofu fylgja húsinu ásamt gerfihnattadiski á þaki.  Sjá annars upplýsingablað seljenda um ástand eignar sem liggur fyfir hjá sölumanni.                                                     

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Ingólfur Gissurarson löggiltur Fasteignasali og leigumiðlari S: 896-5222  ingolfur@valholl.is    
Ertu í fasteignahugleiðingum, Þarftu að selja ?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, byggða á 37 ára samfelldu starfi við fasteignasölu á Íslandi, sanngjörn söluþóknun, hringið þegar ykkur hentar í síma 896-5222. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Bílastæði
Hleðslustöð
Skoða eignina Sóleyjarimi 5
Sóleyjarimi 5
112 Reykjavík
99 m2
Fjölbýlishús
312
847 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Skoða eignina Sæbólsbraut 27
Sæbólsbraut 27
200 Kópavogur
197.1 m2
Raðhús
624
791 þ.kr./m2
155.900.000 kr.
Skoða eignina Langahlíð 8
Skoða eignina Langahlíð 8
Langahlíð 8
603 Akureyri
127 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
550 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin