Nýuppgerð fasteign með tveimur leigueiningum á besta stað í bænum, samtals 120.7 m2 (gólfflötur)Heimaey fasteignasala kynnir í einkasölu eignina Strandveg 39, VM (Strandberg). FNR: 218-4754. Eignin er skráð 101,2 m2 á 2 hæðum, en einnig er óskráð 19.5 m2 svefnloft og er því ekki inni í heildarfermetrafjölda eignar (samtals 120.7 m2) . Eignin er byggð úr steini/timbri árið 1908 og gæti fallið undir húsfriðun
Eignin er á besta stað í bænum og hefur farið í gegnum miklar endurbætur undanfarið ár (sjá lista neðar í lýsingunni).
Athugið að núverandi myndir eru frá því að eign var í skammtímaleigu (vantar mynd af neðstu hæð) en nýjar eftir breytingar eru væntanlegar.
Eignin skiptist í tvö rými með sitthvorum innganginum:Jarðhæð 50,6 m2: Endurnýjað og innréttað rými sem er leigurými í dag, en þar er salur með nýju salerni og vaski ásamt nýrri hitaveitugrind fyrir húsið. Nýbúið er að flota gólfið ásamt því að skipta um veggklæðningu á austur- og suðurhlið.
Efri hæð: Nýuppgerð íbúð með sérinngangi sem skiptist í 50,6m2 hæð og 19.5m2 svefnloft. Gengið er inn í forstofu með nýlegri innréttingu ásamt þvottavél og þurrkara. Þar innan af er gengið inn í baðherbergi sem er uppgert að hluta til með nýjum blöndunartækjum, nýju salerni og nýjum sturtuklefa. Þaðan er gengið inn í opið rými sem inniheldur stofu, eldhús og eitt svefnherbergi. Eldhúsið er nýlegt með innréttingu frá Ikea og fylgja tæki með í kaupunum. Nýtt parket er á allri hæðinni. Einnig er búið að skipta um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni.
Efsta hæð hússins er rúmgott 19.5 m2 svefnloft með góðri lofthæð. Hægt að skipta upp í tvö rými eða fleiri. Nýtt parket, nýir veggir, ný klæðning, nýtt þak, nýir burðarbitar í þaki.
Frábær fjárfesting sem vilja eiga íbúð í Vestmannaeyjum og fá innkomu af neðri hæðinni eða fyrir þá sem vilja leigja út 2 leigueiningar. Jarðhæðin er með virkum leigusamningi við fyrirtæki í atvinnurekstri en íbúð efri hæðar var í langtímaleigu
Eign á frábærum stað í hjarta miðbæjarins. Stutt í alla þjónustu, 80 metrar í Bónus, 120 metrar í Krónuna og aðra mikilvæga þjónustu. Það er ekki oft sem koma svona eignir í hjarta bæjarins á sölu.
Vinna sem hefur farið fram í eigninni undanfarin ár en áætlaður kostnaður við betrumbætur og viðgerðir 2026 er rétt undir 15.000.000.
2026 - FramkvæmdirNeðsta hæð (Verklok Ágúst 2026)- Járnbitar settir upp til að styrkja burð á gólfi
- Járnbiti klæddur með plötum
- Baðherbergisveggir styrktir með frekari burði fyrir gólf
- Nýjar loftaplötur uppsettar
Miðhæð (Verklok Sept 2026)- Nýtt parket og listar
- Burður fyrir gólf á risi betrumbætt
- Veggir á herbergi styrktir með frekari burð fyrir gólf
- Ný klæðning á ytri veggi í herbergi
- Gluggakistur málaðar að innan
- Nýjar loftaplötur uppsettar
- Ný einangrun í gólfi
- Flotað og parketlagt
- Veggir málaðir
Ris (verklok sept 2026)- Nýtt parket og listar
- Burðarbitum fyrir gólf fjölgað
- Allt nýtt á veggjum
- Veggir málaðir
Þak (verklok Júlí 2026)- Alveg nýtt þak sett upp
- Öllum þaksperrum og lektum skipt út fyrir nýjar
- Ný einangrun í þaki
Veggur (verklok Júní 2026)
- Veggur sem snýr að Bónus var múraður upp á nýtt
2024 - Framkvæmdir- Skipt var um 2 glugga árið 2024
- Skipt var um pappa og járn á neðra þaki við inngang til vesturs árið 2024
- Tröppur utanhúss lagfærðar 2024 og rennur hreinsaðar á sama tíma.
- Nýr sturtuklefi settur upp
- Skipt um nýtt rafmagn að hluta til í eigninni
2018 > 2023 - Framkvæmdir - Nýtt eldhús sett upp
- Ný innrétting fyrir þvottavél og þurrkara sett upp
- Ný hitaveitugrind sett upp
- Gólf flotað
- Skipt um veggklæðningu á austur- og suðurhlið.
- Ný blönduartæki og salerni sett upp
- Nýjar fráveitulagnir inn í hús
- Skipt um glugga sem snýr í vestur
Mikið endurnýjuð eign í hjarta miðbæjarins. Eign sem vert er að skoða betur.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón Hjörleifsson löggiltur fasteignasali s: 895 2548 eða email: gh@heimaey.net