Fasteignaleitin
Skráð 28. mars 2026

Fannagil 10

EinbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
227.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
679.684 kr./m2
Fasteignamat
122.950.000 kr.
Brunabótamat
122.100.000 kr.
Mynd af Friðrik Einar Sigþórsson
Friðrik Einar Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
fsfasteignirEignalisti
Garður
Bílskúr
Fasteignanúmer
2282212
Landnúmer
199116
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
steyptur pallur til suðurs
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Fannagil 10.
Glæsilegt útsýnishús sem er rúmgott og bjart með stórum gluggum.
Húsið er  227,9m2 fimm herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr auk 18m2 útigeymslu  á góðum stað í Giljahverfi á Akureyri.  Stór steypt verönd með heitum potti og steyptur stigi niður í garð. 

Vandaðar sérsmíðaðar Innréttingar og innihurðir eru  allar hnotuspónlagðar.
Gólfefni eru flísar og gegnheilt hnotuparket.
Borðplötur eru ljós steinn í eldhúsi, baðherbergjum og einnig í gluggasyllum.

Efri hæð: Forstofa,  eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/inngangur, geymsla og bílskúr.
Neðri hæð: Tvö svefnherbergi, sjónvarpshol/vinnuaðstaða, baðherbergi og geymsla.

Forstofa: Flísar á gólfum og skápur hnotupónlagður.
Eldhús: Stór mjög falleg eldhúsinnrétting hnotuspónlögð innbyggð  uppþvottavél, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Ofnar í vinnuhæð, gert er ráð fyrir kaffivél í innréttingu. Eyja er í eldhúsi þar eru góðar skúffur, eldavél er í eyju.  Ljós steinn á borðum tveir gluggar á eldhúsi. Flísar á gólfi.
Borðstofa: Mjög björt og rúmgóð með stórum glugga með einstöku útsýni.  Flísar á gólfi.  Fallegar hillur með lýsingu við enda borðstofu.
Stofa: Björt og rúmgóð stórir gluggar og gott útsýni, flísar eru á gólfum og útgengi er út á steyptan pall.  Stofa eldhús og borðstofa eru í opnu rými með góðri lofthæð.
Baðherbergi: Þar er sérsmíðuð innrétting sem er spónlögð með hnotuspón með ljósum stein á borðplötu, baðkar, sturta með gleri, innbyggð blöndunartæki,  upphengt salerni. Opnanlegur gluggi er þar.
Svefnherbergi: Eru tvö með gegnheilu hnotuparketi á gólfum, skápar sem eru spónlagðir með hnotu í báðum herbergjum, gólfsíður gluggi í hjónaherbergi og tveir gluggar í hinu.
Þvottahús: Flísar á gólfum, hnotuspónlögð innrétting, með rými fyrir þvottavél og þurrkara.  Mjög stór skápur er einnig í þvottahúsi sem er hnotuspónlagður.  Inngangur er í þvottahús.  Inn í íbúðina er rennihurð sem er hnotuspónlögð.
Bílskúr: Þar eru flísar á gólfum og aðeins uppá veggi, góðir gluggar, innfeld lýsing, rúmgóð vönduð innrétting eins og aðrar innréttingar í húsinu, sjálfvirkur hurðaopnari á bílskúrshurð.
Neðri hæð:
Stigi milli hæða er með steyptum þrepum.
Baðherbergi: Rúmgóð innrétting sem er spónlögð með hnotuspón og sturta með sturtugleri.  Flísar á gólfi og veggjum.  Rennihurð er hnotuspónlögð.
Tvö svefnherbergi með gegnheilu hnotuparketi á gólfum og vönduðum fataskápum sem eru hnotuspónlagðir.  Svalahurð með gleri er út úr öðru herberginu.
Hol: Er mjög rúmgott og bjart með flísum á gólfi.
Geymsla:  Rúmgóð, er upphituð með stórri hurð. 

Stór steypt verönd og steyptir veggir, hluti veggjanna eru viðarklæddir. Þar er heitur pottur með einstöku útsýni, hiti er í hluta verandar.
Hiti er í bílaplani og einnig búið að steypa stéttar og tröppur niður í garð.
Útigeymsla er undir veröndinni. Hún er rúmgóð með uppdraganlegri rennihurð.

- Einstaklega falleg eign í Giljahverfi sem er með möguleika á aukaíbúð.
- Hiti í gólfum.
- Mikil lofthæð er í íbúð á efri hæð.
- Stór verönd með heitum potti með vandaðri stýringu sem stýrt er með snertiskjá á baðherbergi.
- Hiti er í hluta á verönd.
- Hiti er í bílaplani.
- Frábært útsýni er úr eigninni.
- KNX stjórnkerfi er í húsinu fyrir ljós og hita.
- Innfeld lýsing er í öllu húsinu nema geymslum.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf.

Nánari upplýsingar í síma 571-9991 eða á fsfasteignir@fsfasteignir.is

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2006
27.8 m2
Fasteignanúmer
2282212
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.950.000 kr.

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Brekadalur 12
Bílskúr
Skoða eignina Brekadalur 12
Brekadalur 12
260 Reykjanesbær
245.5 m2
Einbýlishús
624
566 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Miðgarður 11
Bílskúr
Skoða eignina Miðgarður 11
Miðgarður 11
230 Reykjanesbær
304.3 m2
Einbýlishús
8
490 þ.kr./m2
149.000.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 16
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 16
Akurgerði 16
190 Vogar
230.2 m2
Einbýlishús
614
387 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Njarðarbraut 1
Skoða eignina Njarðarbraut 1
Njarðarbraut 1
260 Reykjanesbær
356.5 m2
Atvinnuhúsn.
2
398 þ.kr./m2
141.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin