Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 – jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna Hagamel 35 - Rúmgóða 180 fermetra mikið endurnýjaða eign með sérinngangi, fimm svefnherbergjum og suðursvölum. Eignin er eingöngu sýnd með einkaskoðun og fyrstu sýningar verða mánudaginn 26. október. Bókið skoðun. Eignin skiptist í sér anddyri, fimm svefnherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús og geymslu. Bílskúrsréttur fylgir eigninni.Fjöldi svefnherbergja og dvalarrými á báðum hæðum bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Nánari lýsing eignar:
Komið inní flísalagt
anddyri. Sérinnangur og nýlegar flísar.Stigi með nýlegu teppi upp á aðalhæð. Fataskápar í stigaholi.
Aðalhæð:
skráð um 110 fermetrar.Eldhús og stofa eru í opnu, samliggjandi rými. Hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Stofa með parketi. Gluggar á 3 vegu.
Á hæðinni eru jafnframt
þrjú svefnherbergi með parketi.
Aðalsvefnherbergið er rúmgott með fataskápum og svölum til suðurs,
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, endurnýjað með fallegum hvítum flísum.
Efri hæð: skráð um 70 fermetrar, en gólfflötur er nær 80 fermetrumÞegar komið er upp á efri hæð er rúmgott
sjónvarpsherbergi,
Velux þakgluggar eru til staðar og auðvelt er að lofta út. Mögulegt er að stækka hæðina með því að setja kvist.
Herbergjagangur og þar er gengið í
tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtuhaus, auk lítils
þvottahúss og
geymslu.
Sameiginlegur garður.
TeikningarViðhald og endurbætur:Þak, gluggar, neysluvatnslagnir og ofnalagnir hafa verið endurnýjuð á undanförnum árum. Fyrir um ári voru frárennslis- og drenlagnir myndaðar og reyndust í góðu lagi.
Bílskúrsréttur er til staðar. Fyrirspurn var send um byggingu hans til skipulagsfulltrúa sem tók vel í það. Kaupandi getur tekið málið áfram óski hann eftir því.
Flott eign í rólegu umhverfi í hjarta Vesturbæjar, nærri íþróttafélagi, leikskólum, grunnskólum, verslunum eins og Melabúðinni, Vesturbæjarsundlauginni og Háskóla.
Nánari upplýsingar um Hagamel 35 gefur: Jason Kristinn Ólafsson í netfangið jason@betristofan.is eða í síma 7751515 - löggiltur fasteignasali