Opið hús miðvikudaginn 28. október frá kl 16:45 til 17:30 - Meistaravellir 35, 107 Reykjavík - íbúð 0201
Híbýli fasteignasala kynnir: Glæsileg, mikið endurnýjuð og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð á mjög eftirsóttum stað við Meistaravelli í Vesturbæ Reykjavíkur.Eignin er skráð 109,5 fm. Þar af er sérgeymsla í kjallara 4,2 fm. Eigninni fylgir bílskúrsréttur í lengju norðan við húsið.Bókið skoðun hjá ÓIafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala - s. 865-8515 / olafur@hibyli.is
Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi, fataskápar, fatahengi. Við forstofu er leikhorn, þar væri einnig hægt að bæta við fataskápum.
Eldhús: Hvít endurnýjuð innrétting með góðu skápa og vinnuplássi, quartz borðplötur, borðkrókur, gluggi.
Borðstofa: Opin að hluta við eldhús og alveg opin við setustofu, harðparket á gólfi.
Setustofa: Mjög rúmgóð og björt með stórum gluggum, parket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í suður.
Svefnálma er með þremur svefnherbergjum og baðherbergi. Rennihurð sem lokar álmu af frá stofu og eldhúsi. Á svefnganginum er einnig skápur með tengjum fyrir þvottavél og þurrkara og vinnukrókur.
Herbergi 1: Rúmgott hjónaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápar með innbyggðri lýsingu.
Herbergi 2:: Gott barnaherbergi, harðparket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 3: Einnig gott barnaherbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað á smekklegan hátt fyrir örfáum árum, flísar á veggjum og gólfi, baðkar með flísalagðri hlið og glerhlið að lofti, upphengt salerni, hvít innrétting undir vaski, quartz borðplötur, baklýstur spegill ofan við vask.
Sameiginlegt
þvottahús er í kjallara hússins. Sameiginleg
hjóla & vagnageymsla er í kjallara.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla (4,2 fm) í kjallara hússins.
Viðhald/endurbæturHúsið var múrviðgert og málað að utanverðu árið 2017.
Neysluvatnslagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2020.
Raflagnir innan íbúðar endurnýjaðar 2020.
Allar hurðir endurnýjaðar innan íbúðar.
Stóri glugginn í stofunni endurnýjaður 2024
Stigahús var málað og teppi endurnýjuð árið 2020
Búið er að setja upp tvær hleðslustöðvar á bílaplaninu fyrir Meistaravelli 31-35.
Um 2006 voru skólplagnir fóðraðar undir húsinu.
Árið 2022 var skolplögn fóðruð í húsinu nr 35.
Frábær staðsetning og barnvænt umhverfi - stutt í skóla, leikskóla og íþróttasvæði KR. Öll helsta verslun og þjónusta í næsta nágrenni - göngufæri við miðborgina og Háskólann.
Melabúðin og sundlaug Vesturbæjar í allra næsta nágrenni. Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is