Fasteignaleitin
Skráð 21. júlí 2026

Eyravegur 34A

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
80.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
57.300.000 kr.
Brunabótamat
56.850.000 kr.
Mynd af Gylfi Þór Gylfason
Gylfi Þór Gylfason
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
5. hæð · efsta
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2516145
Landnúmer
188509
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
05
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
06
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
upprunalegt
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Lóð
1,20
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Ný eign , efsta hæð , útsýni yfir miðbæ Selfoss.
Valhöll fasteignasala og Gylfi Þór kynna í einkasölu Eyraveg 34A, íbúð 506, 800 Selfoss.(Ekki hefur verið búið í eigninni)


Um er að ræða fallega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi. Sér inngangur af svölum frábært útsýni af svölum yfir miðbæ Selfoss.  Birt stærð eignar er 80,1 fm.
Íbúðin skiptist í anddyri, í alrými er eldhús og borðstofu / stofu, 3 svefnherbergi, gangur,  og baðherbergi / þvottaherbergi. Eigandi lét breyta bæði fataskápum og eldhússkápum þannig að þeir eru alveg upp í loft og jafnframt gerði hann glerskáp ( vínskáp ) í eldhúseyju.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð. 
Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Selfossi þar sem m.a. er nýr miðbær er í göngufæri, verslanir, skólar og þjónusta. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Með hvítum fataskápum alveg upp í loft, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Í alrými, útgengi út á útsýnissvalir, parket á gólfi.
Eldhús: Í alrými, hvít sprautulökkuð innrétting þar sem eigandi fjölgaði skúffum og  skápar eru  alveg uppí loft,  innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og spanhelluborð frá AEG, vifta, parket á gólfi. Eyja með sérsmíðuðum glerskápum.
Baðherbergi / þvottaherbergi: Hvít innrétting , walk in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi, í sturtu og hluta veggja. 
Hjónaherbergi: Rúmgott, hvítir fataskápar alveg uppí loft, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Búið er að taka fataskáp úr þessu herbergi og færa yfir í herbergi 3. Auðvelt að breyta aftur. parket á gólfi. 
Svefnherbergi 3: Hvítur tvöfaldur fataskápur, parket á gólfi.  
Svalir : Frábært útsýni yfir bæinn , flísar fylgja svölum.

Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Í garðinum er sameiginlegt hjólaskýli. 
Húsið: Húsið Eyravegur 34A er byggt úr forsteyptum einingum og klædd litaðri álklæðningu við svalir á völdum stöðum.  Sameignilegur þaksvalir eru á 4 og 5 hæð. Dýrahald er leyft í húsinu.  Sameiginleg bílastæði og hleðslustöðvar fyrir rafbíla. 

Nánari upplýsingar veitir:
Gylfi Þór Gylfason s. 7704040 löggiltur fasteignasali eða á gylfi@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/06/20232.720.000 kr.58.500.000 kr.80.1 m2730.337 kr.
06/06/20232.720.000 kr.54.126.000 kr.80.1 m2675.730 kr.
16/01/20222.070.000 kr.650.000.000 kr.3322.3 m2195.647 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fagramýri 9
Á einni hæð
Skoða eignina Fagramýri 9
Fagramýri 9
800 Selfoss
85.4 m2
Raðhús
413
737 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Kistuholt 2
Á einni hæð
Skoða eignina Kistuholt 2
Kistuholt 2
806 Selfoss
136.2 m2
Parhús
413
447 þ.kr./m2
60.900.000 kr.
Skoða eignina Kambsvegur 23
Skoða eignina Kambsvegur 23
Kambsvegur 23
104 Reykjavík
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
808 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin