Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Skarðshlíð 30a - Björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með góðu aðgengi á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 96,4 m².Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvösvefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sér geymslu í kjallara.
Nánari lýsing:Forstofan er opin með parketi á gólfi og þar af er hol með tvöföldum hvítum fataskáp.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og stórum gluggum sem gera rýmið bjart og notalegt.
Eldhúsið er með parketi á gólfi, grárri L-laga innréttingu með flísum á milli skápa, góðu bekkjar og skápaplássi, borðkrók og glugga sem veitir góða birtu.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með plast parketi á gólfi og tvöföldum fataskápum. Úr öðru herberginu er gegnið út á flísalagðar suður svalir.
Baðherbergið var endurnýjað 2020 með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glervæng, vegghengdu wc, handklæðaofni og innréttingu með handlaug.
Þvottahúsið er með máluðu gólfi og hillu og skápa plássi.
Sér geymsla er í kjallara sem er mjög stór og getur nýst á margvíslegan hátt.
Annað:- Baðherbergið allt endurnýjað 2022
- Blokkin öll máluð sumar 2026
- Björt og rúmgóð íbúð á jarðhæð með góðu aðgengi
- Frábær staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og Bónus verslun
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.