PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu einbýlishús í Sandgerði Bjarmaland 18. Um er að ræða 217,6 fm og þar af er bílskúr 29,7 fm og úti geymsla 23,6 fm.. Eignin hefur 4 svefnherbergi, baðherbergi, auka herbergi á neðri hæð með sér inngangi og salerni, stórt opið eldhús við bjarta stofu og bílskúr. Byggingarár er 1974 en eignin hefur verið töluvert endurnýjuð á síðustu árum. Nýleg gólfefni og innihurðar. Eldhús er nýlegt. Flestir gluggar hafa verið endurnýjaðir. Ofnar endurnýjaðir og þak járn endurnýjað. Stór afgirtur garður með sólpalli, heitum potti og geymsluskúr. Bílskúr er mjög rúmgóður, þar var áður lítil aukaíbúð sem mögulegt er að setja upp aftur.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu. Frá forstofu er hægt að ganga upp stiga upp á efri pall þar sem eru fjögur svefnherbergi ásamt baðherbergi. Gengið er frá forstofu inn í rúmgóða stofu. Frá stofu er gengið inn í fallegt opið eldhús með hvítri innréttingu, inn af eldhúsi er þvottahús. Hægt er að ganga út í bakgarð frá þottahúsi. Frá borðstofu er gengið út á sólpall með heitum potti. Á neðri hæð hússins er gott herbergi með salerni, þar er sér inngangur og var áður íbúð. Inn af því er rúmgóður bílskúr.
Forstofa: Í forstofu er nýleg útidyrahurð ásamt nýlegum skáp, flísar á gólfi.
Eldhús: Falleg háglans hvít innrétting. Flísar á gólfi og milli skápa. Gengið út á sólpall og heitan pott frá borðstofu.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi og hefur inn réttingu þar sem tæki eru í vinnuhæð, flísar á gólfi og hurð út á baklóð
Stofa: Björt rúmgóð stofa með nýlegu parketi, stórir nýlegir gluggar.
Herbergi: Fjögur svefnherbergi, með nýlegu parketi á gólfum. Einnig er auka herbergi með sér inngangi og salerni á neðri hæð sem og hægt að fara inn í bílskúr, þar væri hægt að gera annað herbergi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með ljósri innréttingu. Flísar á veggjum og gólfi. Upphengt salerni. Stór spegill. Nýleg flísalögð sturta. Annað salerni er í kjallara.
Bílskúr: hefur málað gólf, inngönguhurð og glugga. Innangengt í bílskúr frá herbergi í kjallara.
Sólpallur: ca 30 fm sólpallur með skjólveggjum og heitum potti. Hægt að ganga út á garð frá sólpalli, við pallinn er stór 23,6 fm geymsluskúr með inngönguhurð frá verönd og stórri hurð að framan.
Lóð er afgirt og frágengin, bílaplan hellulagt með snjóbræðslu, stéttar að framan steyptar með snjóbræðslu að hluta, bakgarður graslagður og lóð afgirt.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.