Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2026

Heiði ( Heiðargerði 7)

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-804
165.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
483.364 kr./m2
Fasteignamat
60.400.000 kr.
Brunabótamat
85.800.000 kr.
Mynd af Loftur Erlingsson
Loftur Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2202211
Landnúmer
166527
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Virkni eðlileg
Frárennslislagnir
Óþekkt en virkni eðlileg
Gluggar / Gler
ATH
Þak
Upprunalegt en málað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita/ofnar
Inngangur
Tveir inngangar
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
5 herb. 136fm steinsteypt einbýlishús ásamt 29,3fm frístandandi bílskúr á stórri og skjólsælli leigulóð í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Hitaveita, ljósleiðari og stór lóð með hávöxnum trjágróðri.


Forstofa er flísalögð og stór skápur þar fyrir yfirhafnir, lítið forstofuklósett og ágætt forstofuherbergi með fataskáp.
Hol með dyrum út á stóran pall, afmarkað frá stofu með skilrúmi.
Stofan björt og rúmgóð. Eldhúsið með hvítri innréttingu, vönduðum tækjum og uppþvottavél sem fylgir við sölu.
Herbergjagangur með fataskápum, þremur svefnherbergjum, og baðherbergi, hjónaherbergið ágætlega stórt og með stærstu skápunum.  Baðherbergið með stórum sturtuklefa, skáp, klósetti, vaski og handklæðaofni, gólf þess og veggir flísalagðir.
Í bakdyrainngangi eru þvottasnúrur og hyllur, inntaksrými þar við hliðina með skolvaski og tenginum fyrir þvottavél, og geymsla með hillum. 
Gólfefni í húsinu eru parket á stofu og gangi en dúkar á herbergjum og korkflísar á eldhúsi.   
Bílskúrinn er snyrtilegur og með nýlegum innkeyrsludyrum, bílaplanið malbikað og stór hellulögð stétt við enda hússins að pallinum í garðinum.
Í Árnesi er grunnskóli sveitarfélagsins og félagsheimilið Árnes, Neslaug, N1 bensínstöð með nauðsynjaverslun og góðu grilli. 
Þá er veglegt íþróttahús í byggingu. 
Stutt er í Þjórsárdalinn með öllum hans náttúruperlum, og 30mín akstur á Selfoss. 

Húsið er í eigu Ríkissjóðs og Skeiða- og Gnúpverjahrepps og hefur staðið autt í nokkra mánuði.  Annars hefur það verið bústaður skólastjóra, sveitarstjóra eða kennara í gegnum tíðina og fengið almennt ágætt viðhald.
T.d. var hitakerfi þess endurnýjað að einhverju leiti á árunum eftir 2000, húsið málað að utan 2014, pallur stækkaður 2015, bílastæðið malbykað árið 2018 og hellulögn bak við húsið endurnýjuð sama ár svo eitthvað sé nefnt.
En ljóst er að það er kominn tími á endurnýjun og viðhald að einhverju leiti og eru áhugasamir hvattir til að skoða húsið vel og jafnvel með þar til bærum sérfræðingum til að gera sér sem besta grein fyrir ástandi þess og viðhaldsþörf áður en kemur að tilboðsgerð. 
Vitað er að gluggar eru orðnir lúnir og opnanleg fög óþétt og síðustu íbúar urður varir við leka úr lofti eins herbergis við ákveðin verðurskilyrði.
En eigendur hafa eðli málsins samkvæmt aldrei búið í húsinu og hafa því takmarkaða þekkingu á ástandi þess umfram það sem að framan greinir og blasir við við skoðun. 

- - VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN - -

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    loftur@husfasteign.is  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1972
29.3 m2
Fasteignanúmer
2202211
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.550.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47C
Hjallabraut 47C
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 45B
Hjallabraut 45B
220 Hafnarfjörður
158.3 m2
Raðhús
423
1068 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin