Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna eignina Pálsbúð 12, 815 Þorlákshöfn.
Einstaklega glæsilegt og vel skipulagt 224,8 m² einbýlishús á einni hæð við Pálsbúð 12 í Þorlákshöfn. Eignin er byggð árið 2007 og skiptist í 182,8 m² íbúðarhluta og 42 m² bílskúr. Húsið stendur á 892,6 m² lóð með hellulögðu bílaplani og stórum timburpalli með heitum potti frá NormX.
Húsið er afar fallega hannað og einkennist af mikilli lofthæð, stórum gluggum og björtum, opnum rýmum.
Að utan er húsið klætt með Novabrik-steinklæðningu sem gefur því fallegt og vandað yfirbragð.
Innra skipulag og frágangur
Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, öll með fataskáp, forstofa, baðherbergi og gestasalerni, rúmgóð og björt alrými, glæsilegt eldhús, þvottahús og bílskúr.
Eldhús og borðstofa mynda fallegt og opið alrými þar sem er mikil lofthæð og stórir gluggar. Úr borðstofu er útgengt á stóran timburpall sem tengir inni- og útisvæði á skemmtilegan hátt.
Eldhúsið er með vönduðum innréttingum frá Fagus, miklu skápaplássi og stórri eyju með góðu vinnuplássi og eldunaraðstöðu. Innbyggður vínkælir er í eldhúsinnréttingu og setur skemmtilegan svip á rýmið.
Árið 2026 var borðplata eldhússins endurnýjuð með microcementi sem gefur því nútímalegt og fágað yfirbragð.
Á gólfum er harðparket frá Harðviðarvali, að undanskildum baðherbergjum, þvottahúsi og forstofu þar sem eru flísar frá Vídd.
Í húsinu eru þráðlausar hitastýringar sem auka þægindi við daglega notkun.
Baðherbergin eru tvö og var annað þeirra endurnýjað árið 2026 með nýjum blöndunartækjum, riffluðu sturtugleri og handklæðaofni.
Þvottahús er með flísum á gólfi og góðri aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Innfelld led ljós í húsinu.
Bílskúrinn er 42 m² og var gólf endurnýjað með epoxy-húðun árið 2025 sem gefur snyrtilegt og slitsterkt yfirborð.
Lóð og útisvæði
Lóðin er 892,6 m² og er aðkoma að húsinu snyrtileg með rúmgóðu hellulögðu bílaplani.
Við húsið er stór timburpallur, skráður 54,6 m², með heitum potti á upphækkuðum palli. Útisvæðið er fallega afmarkað með skjólveggjum og býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru, slökunar og samveru.
Endurbætur árin 2025–2026.
Árið 2025:
Skipt um alla glugga og útihurðir og settir ál-/trégluggar og hurðir.
Epoxy-húðun sett á bílskúrsgólf.
Árið 2026:
Annað baðherbergið endurnýjað með nýjum blöndunartækjum, rifflaðri sturtuglerþilju og handklæðaofni.
Borðplata í eldhúsi endurnýjuð með microcementi.
Allt húsið málað.
Nýjar rúllugardínur frá Vogue settar upp í öllu húsinu.
Samantekt
Pálsbúð 12 er einstaklega glæsileg og vel hönnuð fjölskyldueign þar sem saman fara rúmgóð og björt alrými, mikil lofthæð, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, vandaðar innréttingar og fallegt efnisval.
Nýlegar endurbætur, stór bílskúr, hellulagt bílaplan og rúmgott útisvæði með heitum potti.
Fallegt og vandað heimili þar sem hönnun, gæði og þægindi fara saman.
Eign sem vert er að skoða!
Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, Löggiltur fasteignasali, í síma 846-6581, tölvupóstur ragna@husfasteign.is.
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu eignar kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald 0,3 % af brunabótamati sem lagt er á að lokinni lokaúttekt.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.v