Fasteignaleitin
Skráð 21. júlí 2026

Reynihlíð 9D

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-604
99.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.000.000 kr.
Fermetraverð
741.483 kr./m2
Brunabótamat
64.450.000 kr.
Byggt 2022
2. hæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
25147961
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala ( Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392) kynna  Svansvottað íbúðarhúsnæði að Reynihlíð 9, Hörgársveit sem byggt er af Ák smíði. Íbúðin er með föstum fataskápum frá TAK í forstofu og öllum svefnherbergjum. Eldhús og bað innréttingar frá TAK. Eignin afhendist með kæliskáp með frysti (Whirlpool), span helluborði og ofn með blæstri (Whirlpool), gufugleypir (Thechnowind), uppþvottavél (Whirlpool), þvottavél (Electrolux) og þurrkara, barkarlaus m/varmadælu (Electrolux). Handklæðaofn er á baðherbergi, Disano vínil parket er á gólfum en forstofa og baðherbergi eru flísalögð með Atlas concorde realm flísum 30x60.

Nánari lýsing á eign;
Forstofa er með flísum á gólfi og föstum fataskáp.
Gangur með með vínil parket á gólfi.
Tvö svefnherbergi með vínil parket á gólfi og föstum fataskápum.
Geymsla að stærð 8,3 m2 með glugga og parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg að hluta, innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Þvottavél og þurkari fylgja kaupunum.
Eldhúsi er opið við stofu, loft er tekið upp og vínil parket á gólfi, innrétting með efri- og neðri skápum, span helluborði, ofn, ísskáp, háf og uppþvottavél. Útgent er úr stofu á svalir sem er 10,2 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á 2. hæð, alls 5,6 m2.


Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is

-Eignin er í einkasölu.

Íbúð 0201, fastanúmer 251-4796, Reynhlíð 9D .
Eignin er þriggja herbergja íbúð á 2. hæð, birt stærð 99,8 fermetrar.
Eigninni fylgja svalir (0205), 10,2 fermetrar 
Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameign allra samkvæmt kalfa eignaskiptayfirlýsingar um sameign.

Birt flatarmál séreignar er 99,8 fermetrar
Hlutfallstala í húsi er 17,09%
Hlutfallstala í hita er 17,00%
Hlutfall íbúðar í sameiginlegu rafmagni er 1/6

Hvað einkennir Svansvottaðar byggingar:
Strangar kröfur sem banna innihald skaðlegra efna í bygginga- og efnavöru, sjá svanurinn.is
-Góð innivist með góðri loftræsingu og hljóðvist. Byggingin er í hljóðvistarflokki C og er hönnuð samkvæmt ÍST 45 2016. ALADIN-STIPE högghljóðlisti eða sambærilegt kemur ofan á veggi efri hæðar til að slíta CLT milligólfarplötur frá CLT innveggjum. CLT einingar eru slitnar í sundur með pressaðri steinull á milli íbúða. Steypt jarðgólf og CLT milligólfaplötur eru slitnar sundur með steinull á milli íbúða og slíta þar með högghljóð og leiðnihljóð milli íbúða.
-Lágmarks losun gróðurhúsalofttegunda í öllum líftíma byggingar.
-Hagkvæma orkunotkun með áherslu á orkusparnað. Ísskápur, uppþvottavél, þvottavél og þurrkari sem allt fylgir með kaupunum eru í góðum orku- og hljóðflokk samkvæmt reglugerð evrópusambandsins.
-Gæðastjórnun í öllu byggingarferlinu ásamt rekstrar- og viðhaldsáætlun fyrir líftíma byggingarinnar.

Svansmerkið er lífsferils merki sem þýðir að í allri viðmiðaþróun er leitast við að hanna kröfur sem taka á öllum lífsferli vörunnar eða þjónustunnar sem um ræðir. Kröfur Svansins tryggja að vottuð vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna, með því að skoða allan lífsferilinn og skilgreina helstu umhverfisþætti, setja strangar kröfur um helstu umhverfisþætti sem skilgreindir hafa verið svo sem; efnainnihald og notkun skaðlegra efna, flokkun og lágmörkun úrgangs, orku- og vatnsnotkun, gæði og ending, passa að þekkt hormónaraskandi og ofnæmis- eða krabbameinsvaldandi efni séu ekki notuð, herða kröfurnar reglulega þannig að Svansvottaðar vörur og þjónusta séu í stöðugri þróun. Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna sem var komið á fót af Norrænu ráðherranefndinni árið 1989. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vörum eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni kosti. Á Íslandi er Umhverfisstofnun umsjónaraðili Svansvottunarinnar og vinnur náið með skrifstofum Svansins á öllum Norðurlöndunum.

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lækjasmári 4
Skoða eignina Lækjasmári 4
Lækjasmári 4
201 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
807 þ.kr./m2
77.700.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 10
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsvegur 10
Holtsvegur 10
210 Garðabær
108.5 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Sóltún 8
Skoða eignina Sóltún 8
Sóltún 8
105 Reykjavík
88 m2
Fjölbýlishús
211
908 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Gullsmári 10
Skoða eignina Gullsmári 10
Gullsmári 10
201 Kópavogur
104.9 m2
Fjölbýlishús
413
809 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin