Fasteignaleitin
Skráð 23. okt. 2026

Láland 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
240.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
257.000.000 kr.
Fermetraverð
1.068.163 kr./m2
Fasteignamat
248.550.000 kr.
Brunabótamat
137.550.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1977
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2038234
Landnúmer
108834
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta 2009
Raflagnir
dregið nýtt 2009-12
Frárennslislagnir
Myndað ca 2016
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir 2009
Þak
Nýr þakdúkur 2009
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór timburverönd til suðurs
Upphitun
Hitaveita/Danfoss/Gólfhiti að mestu
Inngangur
Sérinngangur
Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:
Einstaklega fallegt, rúmgott og vel skipulagt 240,6 fm einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað við Fossvogsdalinn í Reykjavík. Eignin er með björtum og rúmgóðum stofum, vönduðu eldhúsi, fjórum svefnherbergjum með möguleika á fimmta, innangengum bílskúr og einstaklega skjólgóðum og grónum suðurgarði. Húsið hefur fengið gott viðhald og töluverðar endurbætur hafa verið framkvæmdar á undanförnum árum, meðal annars á eldhúsi, gluggum, þaki og gólfefnum.
Samkvæmt skráningum HMS er heildarflatarmál eignarinnar 240,6 fm sem skiptist í íbúðarrými 194,0 fm, bílskúr 29,8 fm. 
ATH. HMS hefur skráð rými sem er undir verönd hússins 16,8 fm í fermetrafjölda hússins en seljendur eru að óska eftir að það verði leiðrétt og þar með mun fasteignamat eignarinnar lækka.
VERÐMAT MIÐAST VIÐ MÖGULEGAR BREYTINGAR Á SKRÁNINGU.

Láland 8 er einbýlishús á einni hæð, upphaflega teiknað af Kjartani Sveinssyni og byggt árið 1977. Árið 2009 var hönnuð stækkun á húsinu af ÚTI INNI arkitektum. Stækkunin fól meðal annars í sér stækkun á eldhúsi og viðbyggingu með hjónasvítu inn af stofu. Viðbyggingin var fullgerð árið 2012 og eru núgildandi teikningar hússins frá því ári.
Í eigninni eru í dag fjögur svefnherbergi, (möguleiki á því fimmta) stofa, borðstofa, eldhús, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasalerni, forstofa, miðrými, þvottahús, geymsla og bílskúr. Samkvæmt teikningum eru fjögur svefnherbergi á herbergjagangi en tvö þeirra hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi. Því er möguleiki á að fjölga svefnherbergjum í fimm.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Rúmgóð með góðum fataskápum og flísum á gólfi.
Gestasalerni: Er inn af forstofu með innréttingu undir handlaug, flísum á gólfi og veggjum og glugga til loftunar.
Miðrými: Opið og rúmgott miðrými sem tengir saman forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og herbergjagang. Parket á gólfi.
Eldhús: Einstaklega rúmgott og vandað eldhús sem var endurnýjað að fullu árið 2009. Það er búið öllum helstu þægindum og býður upp á einstaklega gott vinnu- og geymslupláss. Sérsmíðuð eikarinnrétting með eyju og dökkri granítborðplötu bæði á eyju og veggfastri innréttingu. Einstaklega gott skápapláss er í innréttingunni, gott vinnurými, innbyggð uppþvottavél, rými fyrir bæði ísskáp og frystiskáp og geta 4-6 setið við eyjuna. 
Tækin: Í eyjunni eru 90 cm breitt AEG helluborð og 90 cm breiður AEG bakaraofn. Auk þess er Samsung bakaraofn á vegg í innréttingu. Sérstakur kaffibar (tækjaskápur) með rennihurð er skemmtileg viðbót við eldhúsið. Úr eldhúsinu er útgengt á skjólgóða verönd til suðurs.
Stofa og borðstofa: Eru samliggjandi í einstaklega björtu, opnu og rúmgóðu rými með stórum gólfsíðum gluggum sem veita góða birtu í rýmið og með parket á gólfi. Borðstofan er í sömu gólfhæð og eldhúsið en í stofuna þarf að fara niður eitt þrep.
Herbergi I: Skrifstofa / herbergi í viðbyggingu: Inn af stofunni er rúmgott herbergi sem samkvæmt teikningum er skilgreint sem hjónasvíta en nýtist í dag sem góð skrifstofa. Rýmið er eitt herbergi án sérbaðherbergis eða fataherbergis. Falleg tvöföld hurð með gleri er inn í herbergið og parket á gólfi. Viðbyggingin var fullgerð árið 2012.
Herbergjagangur: Á herbergjagangi eru í dag þrjú svefnherbergi en samkvæmt teikningum eru þau fjögur. Tvö herbergjanna hafa verið sameinuð í eitt stórt herbergi og er því möguleiki á að breyta skipulaginu aftur og fjölga svefnherbergjum í fjögur.
Herbergi II og III: Tvö herbergi sem hafa verið sameinuð í eitt stórt og rúmgott herbergi með parketi á gólfi.
Herbergi IV: Minnsta svefnherbergið með parketi á gólfi.
Herbergi V:  Rúmgott og bjart hjónaherbergi með gluggum til tveggja átta, góðum fataskápum og parketi á gólfi. Úr herberginu er útgengt á verönd til suðurs.
Sjónvarpshol: Ágætis rými með parket á gólfi og rafdrifnum hágluggum sem veita góða birtu.
Baðherbergi: Rúmgott og vel búið baðherbergi með bæði baðkari og sturtu, handklæðaofni og góðri innréttingu undir og við handlaug sem er úr Corian. Flísar eru á gólfi og veggjum og rafdrifnir hágluggar veita náttúrulega birtu og góða loftun.
Þvottahús: Einstaklega rúmgott þvottahús með góðri innréttingu, vaski og miklu vinnu- og geymsluplássi. Parket á gólfi og rafdrifnir hágluggar.
Geymsla: Góð geymsla er inn af þvottahúsi. Á milli þvottahúss og bílskúrs.
Bílskúr: Innangengur 29,8 fm bílskúr með rafdrifinni bílskúrshurð og sérútgönguhurð á suðurhlið. Flísar eru á gólfi en gúmmímottur liggja yfir þeim. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum og 3ja fasa rafmagn.
Kalt rými við steypta veggi undir veröndinn skráð hjá HMS 16,8 fm og er aðgengi að því um hlera á pallinum. Þarna var áður grunnur af steyptum potti og hafa raflagnir fyrir fyrir garðinn verið festar þar við. (sjá einnig ofar í texta)
Garður og lóð: Garðurinn er einstaklega gróinn og skjólgóður og snýr til suðurs. Útgengt er á suðurverönd úr eldhúsi og hjónaherbergi og skrifstofu og er þannig góð tenging milli íbúðarrýmis og útisvæðis. Garðurinn býður upp á notalega útiveru í fallegu og grónu umhverfi og eru kranar með heitu og köldu vatni, affallsrör og raftenglar við veröndina. Hitalagnir eru í innkeyrslu og gangstétt að húsinu og eru 3 bílastæði fyrir framan húsið.
Framkvæmdir og endurbætur síðustu ára:
2009 - Stækkun hússins hönnuð af ÚTI INNI arkitektum og teikningar samþykktar.
2009 - Framkvæmdir vegna stækkunar hússins.
2009 - Nýjar lagnir lagðar að eldhúsi og þvottahúsi vegna breytinganna.
2009 - Eldhúsið endurnýjað að fullu með sérsmíðaðri eikarinnréttingu og granítborðplötum.
2009 - Nýr þakdúkur settur á húsið.
2009 - Loftaplötur endurnýjaðar.
2009 - Allir gluggar hússins endurnýjaðir og Velfac-gluggar settir í húsið.
2009 - Quick-Step parket frá Harðviðarvali lagt á gólf.
2009-12 - Dregið nýtt rafmagn í húsið
2012 - Viðbygging hússins, hjónasvíta inn af stofu, fullgerð.
2023–2025 - Íbúðarrýmið að mestu málað.
2026 - Innihurðir sprautulakkaðar hjá Sprautun.is og hurðakarmar málaðir af seljendum.
Staðsetning og nærumhverfi:
Láland 8 stendur á einstaklega góðum stað í grónu og eftirsóttu íbúðahverfi í Fossvogi, við eitt fallegasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, Fossvogsdalinn. Staðsetningin sameinar kosti þess að búa í rólegu og grónu íbúðahverfi með stuttum vegalengdum í fjölbreytta þjónustu og útivist. Í Fossvogsdalnum eru fallegir göngu- og hjólastígar, opin græn svæði og góð aðstaða til útivistar allan ársins hring. Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttastarf og aðra þjónustu.
Um er að ræða einstaklega fallega og rúmgóða fjölskyldueign á einni hæð, með vönduðum innréttingum, björtum stofum, sveigjanlegu herbergjaskipulagi, innangengum bílskúr og fallegum skjólgóðum suðurgarði með möguleika á heitum potti og fl.
Eignin er á eftirsóttum stað í Fossvogi þar sem náttúran og borgarlífið fara vel saman.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk Davíðsdóttir löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 862-1914 milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfanginu thordis@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
- Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. samkvæmt gildandi gjaldskrá.
- Lántökugjald lánastofnunar – samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1977
29.8 m2
Fasteignanúmer
2038234
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.750.000 kr.

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hvassaleiti 73
3D Sýn
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hvassaleiti 73
Hvassaleiti 73
103 Reykjavík
258,1 m2
Raðhús
714
767 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Skoða eignina Fjóluás 4
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Fjóluás 4
Fjóluás 4
221 Hafnarfjörður
250,2 m2
Raðhús
614
679 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:26. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Fossvogsvegur 26
Fossvogsvegur 26
108 Reykjavík
242 m2
Fjölbýlishús
523
1384 þ.kr./m2
335.000.000 kr.
Skoða eignina Mávabraut 8B
Bílskúr
Skoða eignina Mávabraut 8B
Mávabraut 8B
230 Reykjanesbær
176,6 m2
Raðhús
514
503 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin