Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2026

Melasíða 8

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-603
87.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
685.355 kr./m2
Brunabótamat
48.300.000 kr.
Byggt 1989
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
21490806
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg fasteignasala ehf. (Einar Pálsson lgf. einar@fastborg.is; 857-8392) kynna þriggja herbergja íbúð á 1. hæð í fjölbýli með stórri verönd til suð- vesturs að Melasíðu 8, (íbúð 102) 603 Akureyri. 

Húsið er byggt árið 1989 með alls 15 íbúðum á 3 hæðum og kjallara samkvæmt þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu. Íbúðin (01 0102) er skráð 82,4 m2 að stærð samkvæmt opinberum skráningum HMS ásamt sér geymslu í kjallara hússins alls 5 m2 að stærð og sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.

Lýsing eignar:
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús er með flísum á gólfi. Eldhúsinnrétting er með efri- og neðri skápum og flísum á milli skápa. Uppþvottavél fylgir með.
Stofan er rúmgóð með parket á gólfi og nýjum sólargluggatjöldum. Útgengt er úr stofu út á stóra verönd sem snýr til suð- vesturs með raflæsingu.
Hjónaherbergi er með parket á gólfi og föstum fataskáp.
Barnaherbergi er með parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkari með sturtu, klósetti og innréttingu.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi og vinnuborði með vask.
Sér geymsla merkt (0014) er í kjallara hússins ásamt sameiginlegri vagn- og hjólageymslu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Pálsson, löggiltur fasteignasali í síma 857-8392 eða á netfanginu einar@fastborg.is

-Eignin er í einkasölu
-Raflæsing er á svalarhurð 
-Ljósleiðari er tengdur inn í íbúðina
-Nýtt parket er á gólfi
-Ný ljós eru í íbúðinni
-Ný blöndunartæki í vöskum á eldhúsi og baðherbergi
-Ný sólargluggatjöld í stofu.


Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnun.ar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmastígur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101,6 m2
Fjölbýlishús
32
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Kríuás 19
Efsta hæð
Skoða eignina Kríuás 19
Kríuás 19
221 Hafnarfjörður
97,2 m2
Fjölbýlishús
312
719 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarhjalli 32
Opið hús:27. okt. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Lækjarhjalli 32
Lækjarhjalli 32
200 Kópavogur
70,4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
211
936 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Skoða eignina Grandavegur 42C
Bílastæði
Skoða eignina Grandavegur 42C
Grandavegur 42C
107 Reykjavík
76,4 m2
Fjölbýlishús
211
1007 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin