Borgir fasteignasala kynnir:
Til sölu eða leigu:Björt 4 herbergja enda íbúð á 4. hæð .
Laus strax.
Mikið útsýni gluggar í þrjár áttir.
Lýsing: Komið í rúmgott hol, viðarklæðning á veggjum, fataskápar, góður gluggi i austur.
Holið er opið í mjög góða, bjarta stofu þaðan sem gengið er út á stórar svalir í vestur.
Frá holi er einnig opið í eldhúsið sem er með upphaflegum innréttingum en eldhúsið er bjart með tveim góðum gluggum.
Á svefnherbergja gangi eru svo 3 herbergi og baðherbergi. Gluggi í norður við enda gangs.
Barnaherbergi 1 : Fyrst er barnaherbergi með glugga að svölunum, fataskápur.
Aðal svefnhergi :Síðan er hjónaherbergið með góðum skápum og þaðan gegnt út á svalirnar.
Barnaherbergi 2: Á móti hjónahebergi er eitt lítið herbergi með glugga í austur.
Baðherbergi: Við hlíðina á litla herbergjinu er baðherbergið. Þar baðkar. Upphaflegar flísar á veggjum.
Gólfefni er parket á flestu en dúkur á baðherbergi og eldhúsi.
Geymslu skápur á stigapalli við innganginn í íbúðina.
Í sameign í kjallara er sér góð (4,7 fm) geymsla með glugga.
Sameiginlegt þvottahús og þurkherbergi í kjallara.
Einnig sameiginleg læst hjólageymsala með inngangi utan frá.
Búið að endurnýja mest allt gler í gluggum í íbúðinni.
Gott viðhald á blokkinni á síðustu árum, ástandsskoðun 2019 og húsið lagfært að utan svo sem útveggir viðgerðir og málaðir.
Þak málað 2011, frárennslislagnir fóðraðar 2010 og drenlagnir endurgerðar 2013.
Umhverfi hússins mjög snyrtilegt eftir nýlegar fdramkvæmdir.
Frábær staðsetning:Stutt í Kringluna, og alla þjónustu þar.
Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta húsi.
Stutt í skóla og íþrótta vellir Víkings í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir Ægir, í síma 896-8030, eða aegir@borgir.i