Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2026

Austurbrú 14 íbúð 405

Nýbygging • FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
96.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
108.200.000 kr.
Fermetraverð
1.125.911 kr./m2
Brunabótamat
8.250.000 kr.
Byggt 2024
4. hæð · efsta
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25313722
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Austurbrú 14 íbúð 405 - Glæsileg þriggja herbergja íbúð á efstu hæð í nýbyggingu - Stærð 96,1 m²
Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661.
Hvammur fasteignasala 466-1600


Um er að ræða einstaklega glæsilega og vel hannaða þakíbúð þar sem rík áhersla hefur verið lögð á gæði, birtu og útsýni. Við inngang tekur á móti rúmgott anddyri með góðu skápaplássi fyrir yfirhafnir og skó.
Hjarta heimilisins er hið bjarta og opna alrými þar sem aukin lofthæð, stórir gluggar, fallegir þakgluggar og vandaður loftadúkur í loftum skapa einstaka rýmisupplifun og fágað yfirbragð. Stofa og borðstofa njóta mikillar birtu og þaðan er útgengt á tvennar svalir. Til austurs blasir við útsýni yfir Pollinn, en til suðurs eru rúmgóðar svalir sem bjóða upp á skjólgott útisvæði.
Eldhúsið er sérlega vandað og hannað með bæði útlit og notagildi í huga. Falleg eldhúseyja með kvartssteinsborðplötu og innbyggðu spanhelluborði myndar glæsilegan miðpunkt rýmisins. Innréttingar eru sérsmíðaðar með vönduðum ljúflokum á öllum skápum og skúffum. Kvartssteinn prýðir bæði borðplötur og vinnusvæði, bakaraofn er staðsettur í þægilegri vinnuhæð og innfelldur vaskur undirstrikar hið hreina og fágaða yfirbragð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni, ásamt vandaðri innfelldri Lumex-lýsingu sem gefur eldhúsinu hlýlegt og nútímalegt yfirbragð.
Við hlið eldhúss er snyrtilegt þvottahús með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél, vel skipulagt og falið frá aðalrýmum íbúðarinnar.
Baðherbergið er einstaklega glæsilegt, flísalagt á smekklegan hátt og útbúið vandaðri innréttingu við vask. Rúmgóð sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og fágaður frágangur skapa lúxuskennda heilsulindarstemningu.
Svefnherbergið er notalegt og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskápum sem tryggja gott geymslupláss.

Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu sem og sérgeymsla, 8,2 m², í sameign. 

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka. 
Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni með vönduðu niðurlímdu parketti.

Sameign er með glæsilegra móti, þar sem komið er inn í rúmgott anddyri. 
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  

Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og úr bílageymslunni er innangengt fyrir eigendur íbúða í Austurbrú 10-18 inn á Skáld Hótel. 
Eigendur geta nýtt sér þjónustu hótelsins, þar má nefna morgunmat, þvottaþjónustu og líkamsrækt.

Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasalan Hvammur
www.kaupa.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmastígur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101,6 m2
Fjölbýlishús
32
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Kríuás 19
Efsta hæð
Skoða eignina Kríuás 19
Kríuás 19
221 Hafnarfjörður
97,2 m2
Fjölbýlishús
312
719 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarás 3
Opið hús:29. okt. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Arnarás 3
Arnarás 3
210 Garðabær
90,3 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Daggarvellir 4A
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Daggarvellir 4A
Daggarvellir 4A
221 Hafnarfjörður
102,2 m2
Fjölbýlishús
514
684 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin