LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu Hverfisgötu 46 – fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús með bílskúr á einum besta stað í Hafnarfirði. Húsið stendur á horni Hverfisgötu og Mjósunds, steinsnar frá miðbæ Hafnarfjarðar. Um er að ræða sjarmerandi og vel skipulagða eign með fjórum svefnherbergjum, björtu alrými og skjólgóðri lóð sem snýr vel við sólu. Frá svölum hússins er fallegt útsýni og gott rými í næsta nágrenni.
Húsið er steypt, byggt árið 1929 og hannað af Guðjóni Arngrímssyni. Eignin hefur fengið gott viðhald og verið talsvert endurnýjuð í gegnum tíðina, þar á meðal var eldhús endurnýjað árið 2021 ásamt gólfefnum að hluta og svölum bætt við sem snúa út á baklóð.
Birt stærð eignarinnar er 177,2 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 23,6 fm.
Eignin skiptist á þrjár hæðir og ris. Á aðalhæð er forstofa, gestasalerni, gangur/hol, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi (eitt nýtt sem sjónvarpsherbergi), baðherbergi og aðgengi að risi með vinnuaðstöðu. Í kjallara er herbergi með sérinngangi, ásamt þvottahúsi og geymslu.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is
Nánari lýsing, aðalhæð
Forstofa snyrtileg með fatahirslum og setbekk, flísar á gólfi.
Gestasalerni innaf forstofu, flísar á gólfi.
Eldhús rúmgott og endurnýjað árið 2021 með góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu, framhliðar frá Haf Studio, kvartsteinn á borðum og innbyggður ísskápur og frystir, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á suðursvalir sem snúa út í bakgarð, parket á gólfi.
Nánari lýsing, efri hæð
Svefnherbergi I rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi II, parket á gólfi.
Svefnherbergi III / sjónvarpsstofa (veggur tekinn niður), útgengi á suðursvalir sem snúa út í bakgarð.
Baðherbergi flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni, flísar á gólfi.
Stigi upp í ris þar sem er skrifstofu- og vinnuaðstaða.
Nánari lýsing, kjallari með skertri lofthæð
Herbergi rúmgott með sérinngangi.
Þvottahús með nýlegri innréttingu, flísar á gólfi.
Geymsla.Bílskúr með heitu og köldu vatni, innangengt bæði frá götu og með gönguhurð út í bakgarð.
Lóðin er afar rúmgóð, afgirt og snýr í suðvestur.
Skjólgóður garður með góðri aðstöðu, undir svölum er köld geymsla.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.Allir kaupendur okkar fá
Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.