Eignamiðlun kynnir:
Glæsilegt 159,8 fm einbýlishús á einstökum stað fyrir aftan Kópavogskirkju á Kársnesi, við rólega og lokaða götu. Stutt er í bókasafn, banka, heilsugæslu, sundlaug, leikskóla, grunnskóla og strætó, allt í 5-10 mínútna göngufæri. Húsið er á einni hæð og stendur á stórri lóð með miklum gróðri. Tvær sólarverandir eru við húsið og önnur þeirra er með heitum potti. Veröndin með pottinum var sett upp árið 2008.Húsið telur anddyri, þvottahús, gestasnyrtingu, eldhús, stofu, gang, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Einnig er góður bílskúr.Gengið er inn í flísalagt anddyri með tvöföldum innbyggðum fataskáp og gestasalerni. Flísalagt gólf.
Vinstra megin er gengið inn í rúmgott þvottahús, flísalagt með gólfhita. Gott vinnupláss er í þvottahúsinu og aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara. Hvít innrétting með miklu skápaplássi og skolvaski. Inn af þvottahúsinu er sturta. Útgengt er á skjólgóðan timburpall með heitum potti.
Rúmgott flísalagt hol sem tengir saman aðrar vistarverur hússins.
Eldhús með snyrtilegri hvítri innréttingu. Blástursofn, vinnueyja, spanhelluborð og uppþvottavél. Gott vinnu- og skápapláss, en eldhúsið var allt endurnýjað árið 2005.
Rúmgóð borðstofa og setustofa með nýju parketlögðu gólfi, mikilli lofthæð og stórum gluggum sem gera rýmið einstaklega bjart. Útgengt er á sólríkan flísalagðan pall frá stofu.
Svefnherbergisálman er parketlögð en þar eru tvö barnaherbergi, bæði parketlögð og annað með innbyggðum fataskáp, rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp. Baðherbergi í enda gangsins er flísalagt með gólfhita, salerni, handlaug og baðkar með sturtu og glerskilrúmi. Í enda gangsins er einnig útgengt út á verönd.
Bílskúrinn er við hlið hússins og er rúmgóður. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum og einnig rafmagn. Gólf er flísalagt og með ágætu rými fyrir sláttuvél og önnur verkfæri, einnig bíldekk, en útgangur er út í bakgarð. Löng innkeyrsla er að bílskúr og hægt væri að leggja nokkrum bílum.
Allar ofnlagnir voru endurnýjaðar árið 2009, húsið málað að utan árið 2020 og tveim árum síðar var skift um járn á þakinu ásamt tjörupappa og hluta timburs.
Garðurinn umhverfis húsið er einstaklega glæsilegur með miklum og fjölbreyttum gróðri. Grænt svæði er bak við hús og því er mikið næði í garðinum. Tvær sólarverandir og heitur pottur ásamt útigrilli.
Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Kristinsson, sími 588-9090 eða sverrir@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson, sími 867-0968 eða unnar@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook