Fasteignaleitin
Skráð 7. júlí 2026

Kléberg 15 með bílskúr

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
192.9 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
466.045 kr./m2
Fasteignamat
80.350.000 kr.
Brunabótamat
98.650.000 kr.
Byggt 1975
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2212417
Landnúmer
172004
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
hafa verið endurnýjaðar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar að hluta
Gluggar / Gler
hefur verið endurnýjað að hluta
Þak
hefur verið endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sólpallur í há-suður
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Kléberg 15, Þorlákshöfn.  Alveg einstaklega skemmtilega staðsett 145m2 steinsteypt einbýlishús með 4 góðum svefnherbergjum og 48m2 bílskúr með 2 aksturshurðum. Innangengt er í ca 36m2, flísalagðan sólskála úr gleri og plexigleri, þaðan sem utangengt er á verönd um nýja rennihurð.  
Húsið stendur í grónu hverfi og á bak við það er stórt, grænt svæði.  Baklóðin snýr í hásuður.   Húsið er staðsett örstutt frá grunn- og leikskóla og íþróttasvæði. 

*  Hægt er að fá allar upplýsingar og fá bóka skoðun í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *


Eignin skiptist svo:
*  Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
*  4 svefnherbergi.  Stórir fataskápar eru í hjónaherbergi.
*  Mjög stór stofa og borðstofa með suður-gluggum.
*  Sjónvarpsstofa.  Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta sjónvarpsstofunni í svefnherbergi.
*  Rúmgott eldhús með góðum borðkrók og flísum á gólfi.
*  Mjög gott þvottahús og geymslu með innréttingu og vinnuborði og flísum á gólfi.  Utangengt er úr þvottahúsinu.
*  Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkari og sturtu, flísum á gólfi og veggjum.

*  Bílskúrinn er tvöfaldur og með 2 aksturshurðum.  Á einfaldan hátt er hægt að gera góða geymslu í skúrnum.

*  Garðurinn er uppgróinn og með góðum sólpall á baklóð.  Baklóðin snýr í há-suður.   


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.  
Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/ 

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar: 

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna: 
KRÓNU VERSLUN
Apótekarann.
Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)
Vínbúðina.
Super 1 pizza (facebook:  super 1 pizza)
Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)
Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.
Caffe Bristól.
Hér er mjög góð heilsugæsla.
Hér er tannlæknir.
Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:
Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn
Tómstundir og afþreying:
Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.
Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.
Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.
Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring
Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.
Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.
Afþreying er hér af ýmsum toga:
hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga. 
Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi. 
Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni. 
Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss). 
Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.  
** Allar helstu fréttir úr sveitafélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is og á www.hamingjuhofn.is
  
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1975
47.9 m2
Fasteignanúmer
2212417
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.200.000 kr.
Fasteignasala Suðurlands ehf.
www.eignin.is

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engjavík 19
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Engjavík 19
Engjavík 19
800 Selfoss
204.1 m2
Einbýlishús
524
583 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Skoða eignina Urðarlaut 0
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Urðarlaut 0
Urðarlaut 0
803 Selfoss
337.3 m2
Einbýlishús
44
495 þ.kr./m2
166.900.000 kr.
Skoða eignina Gráhella 57
Skoða eignina Gráhella 57
Gráhella 57
800 Selfoss
91.7 m2
Raðhús
413
649 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Áshildarvegur 33
Bílskúr
Á einni hæð
Áshildarvegur 33
804 Selfoss
169.6 m2
Einbýlishús
413
504 þ.kr./m2
85.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin