Fasteignaleitin
Opið hús:15. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 9. apríl 2026

Tunguheiði 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
65.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
955.927 kr./m2
Fasteignamat
53.150.000 kr.
Brunabótamat
37.600.000 kr.
Mynd af Ástþór Reynir Guðmundsson
Ástþór Reynir Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2065758
Landnúmer
116238
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
02
Frárennslislagnir
Búið er að endurnýja og fóðra fráveitulagnir út að brunni gert 2022.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Gengið út úr stofu
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sameiginlegur
Ástþór Reynir, löggiltur fasteignasali og Ragna Steinunn, aðstoðarmaður fasteignasala hjá RE/MAX, kynna í sölu vel skipulögð og björt 2ja herbergja íbúð við Tunguheiði 14 í Kópavogi.

Um er að ræða 65,8 fm eign í litlu fjölbýli þar sem fjórar eignir eru í húsinu. Eignin er staðsett í grónu hverfi þar sem stutt er í þjónustu, skóla og verslanir. Sameiginlegur stigagangur er með einni annarri íbúð, teppalagður og snyrtilegur.

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu rými, eitt svefnherbergi, baðherbergi og svalir.

Forstofa er flísalögð og opnast inn í gang með glugga og eikarparketi. Frá gangi er gengið inn í alrými þar sem eldhús og stofa tengjast. Eldhús er með flísum á gólfi og gólfhita. Sérsmíðuð innrétting með gleri á milli skápa. Eyja úr kvartsi með spanhellu og gufugleypi sem nýtist einnig sem borð. Lýsing er í loftum ásamt LED lýsingu í köntum.
Stofa er í opnu rými við eldhús með eikarparketi og stórum gluggum. Innriveggur er klæddur steini með LED lýsingu.
Svefnherbergi er með eikarparketi og fataskáp upp í loft.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, skápaplássi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Úr stofu er útgengt á vestursvalir með glerhandriði. Hluti svalanna við svefnherbergi hefur verið yfirbyggður og nýttur sem geymsla, en sá hluti er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.

Köld geymsla er á lóð og er ekki inni í skráðum fermetrum. Aðgengi er að háalofti úr eldhúsi sem hefur nýst sem auka geymsla. Háaloftið er ekki inn í skráða fermetratölu eignarinnar og er undir þaki hússins. 

Húsið telur fjórar eignir og er með starfandi húsfélag. Tveir bílskúrar eru á lóðinni sem tilheyra öðrum eignum. Ekki er sérmerkt bílastæði en samkomulag er milli eigenda um nýtingu bílastæða. Í sameign hefur verið komið upp hleðslustöð fyrir rafbíla. Þak hússins var endurnýjað árið 2023 og Búið er að endurnýja og fóðra fráveitulagnir út að brunni gert 2022.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Ragna Steinunn Arnarsdóttir aðstoðarmaður fasteignasali í síma 858-9494 eða ragna@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/04/202132.950.000 kr.42.000.000 kr.65.8 m2638.297 kr.
04/05/201014.900.000 kr.11.700.000 kr.65.8 m2177.811 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heiðardalur 8
Bílskúr
Skoða eignina Heiðardalur 8
Heiðardalur 8
190 Vogar
227 m2
Einbýlishús
413
308 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Ofanleiti 23
Bílskúr
Skoða eignina Ofanleiti 23
Ofanleiti 23
103 Reykjavík
125.7 m2
Fjölbýlishús
413
755 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 24
Bílskúr
Skoða eignina Drápuhlíð 24
Drápuhlíð 24
105 Reykjavík
143 m2
Fjölbýlishús
413
769 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Langalína 15
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
902 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin