Fasteignaleitin
Skráð 21. okt. 2026

Arkarvogur 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
163.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
119.900.000 kr.
Fermetraverð
735.132 kr./m2
Fasteignamat
111.200.000 kr.
Brunabótamat
104.200.000 kr.
Byggt 2022
Jarðhæð
Garður
Pallur
Bílastæði
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2511095
Landnúmer
105601
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sérafnotareitur með viðarpalli
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2026 var stjórn falið að athuga hvort tími væri kominn á að mála anddyri, einnig mun stjórn kanna með að setja upp spegla við blindhorn á akstursleiðum ásamt því að fínstilla myndavélar við bílskýli. Farið var yfir í skýrslu stjórnar að byggingarverktaki hefði fengið beiðni frá stjórn um að koma í veg fyrir leka í bílakjallara og laga ryð sem er farið að myndast á gluggafögum og svarahurðum íbúða. Einnig hefur stjórnin þrýst á verktaka um að laga ofnakerfi hússins en of heitt vatn kemur inn á kerfið. Sjá nánar aðalfundargerð 19.01.2026
Einstök 163,1 m² íbúð með aukaíbúð, stórri suðurverönd og stæði í bílageymslu
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 163,1 m² íbúð á fyrstu hæð í nútímalegu fjölbýlishúsi við Arkarvog 4 í Vogabyggð.
Um er að ræða afar áhugaverða og vel skipulagða eign sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika. Eignin samanstendur af rúmgóðri aðalíbúð og minni tveggja herbergja aukaíbúð sem tengjast með hurð innanhúss, þannig að hægt er að nýta eignina sem eina heild eða aðskilja rýmin eftir þörfum. Útfærslan hentar meðal annars vel fyrir samsettar fjölskyldur, fjölskyldur með eldri börn eða þá sem vilja hafa foreldra eða aðra nákomna í sér rými, auk þess sem eignin býður upp á möguleika til útleigu.

-  Tvö aðskilin íbúðarrými sem tengjast innanhúss og bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika
-  Tvö eldhús og tvö baðherbergi
-  Þrjú svefnherbergi og möguleiki á fleiri
-  34,5 m² verönd til suðurs
-  Bílastæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð
-  Vandaður frágangur og snjalllýsingarkerfi frá Plejd


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is.

Íbúðin er skráð 163,1 m² samkvæmt HMS þar af er geymsla 12,7m². Henni fylgir 34,5 m² verönd til suðurs ásamt bílastæði í lokaðri bílageymslu með hleðslustöð.
Húsfélagsgjöld eru 41.798 kr. á mánuði og innifela almennan rekstur, hita, rafmagn í sameign, húsvörslu, ræstingu sameignar, húseigendatryggingu, rekstur lyftu og öryggiskerfi, auk framlags í framkvæmdasjóð.

Nánari lýsing:
Aðalíbúð:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa: Eldhús og stofa mynda bjart og rúmgott alrými þar sem eldhúseyja tengir rýmin skemmtilega saman. Góð aðstaða er fyrir bæði borðstofu og setustofu og úr stofunni er gengið beint út á 34,5 m² verönd sem snýr til suðurs.
Sjónvarpsstofa: Við alrýmið er einnig sjónvarpsstofa sem nýtist vel sem heimaskrifstofa eða fjölskyldurými.
Hjónaherbergi: Rúmgott, með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og rúmgóðum skáp sem veitir gott geymslupláss.
Þvottahús: Sérþvottahús með tengingum fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski.

Aukaíbúð, sveigjanlegt rými með fjölbreytta möguleika:
Minni íbúðin er með eigin forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Hún tengist aðalíbúðinni með hurð sem hægt er að loka, þannig að rýmin geta nýst hvort í sínu lagi.
Forstofa: Með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: Með innréttingu, ofni, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa: Mynda notalegt alrými með parketi á gólfi. Samkvæmt núverandi skipulagi er búið að útbúa viðbótarsvefnherbergi í hluta stofunnar.
Svefnherbergi: Með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara.
Núverandi eigendur hafa meðal annars nýtt minni íbúðina til skammtímaleigu þegar hún er ekki í notkun hjá fjölskyldunni.

Á gólfum er parket frá Ebson og gluggatjöld í alrými og hjónaherbergi eru frá Glory Blinds. Loftljós eru frá Lýsingu og hönnun og tengd snjalllýsingarkerfi frá Plejd, sem gerir kleift að dimma ljós, stilla mismunandi lýsingarsenur og stýra lýsingu bæði með hefðbundnum rofum og í gegnum snjallsíma.
Í sameign er lyklalaust aðgengi og innkeyrsla í bílageymslu er með númeraplötulesara. Í bílageymslu er jafnframt aðstaða fyrir hjólageymslu.
Húsið er steinsteypt og klætt að utan með álklæðningu. Gluggar eru úr áli og timbri með K-gleri.

Staðsetning og nærumhverfi
Vogabyggð er spennandi og nútímalegt hverfi í Reykjavík þar sem borgarlíf og nálægð við náttúruna fara vel saman.
Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram strandlengjunni, Elliðaárdalinn og Laugardalinn. Hverfið býður upp á skemmtilega blöndu af nútímalegri byggð, útivist og góðu aðgengi að þjónustu og samgöngum.
Arkarvogur 4 býður upp á meira en hefðbundna fjölskylduíbúð. Hér er sveigjanlegt heimili sem getur aðlagast breyttum þörfum fjölskyldunnar. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
12/09/202276.050.000 kr.108.900.000 kr.163.1 m2667.688 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2511095
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
10
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.850.000 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skeiðarvogur 141
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skeiðarvogur 141
104 Reykjavík
163,6 m2
Raðhús
524
762 þ.kr./m2
124.600.000 kr.
Skoða eignina Búðagerði 5
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Búðagerði 5
Búðagerði 5
108 Reykjavík
163,9 m2
Fjölbýlishús
435
731 þ.kr./m2
119.800.000 kr.
Skoða eignina Tryggvagata 10
Bílastæði
Opið hús:28. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Tryggvagata 10
Tryggvagata 10
800 Selfoss
165,9 m2
Fjölbýlishús
524
783 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Háaleitisbraut 28
Bílskúr
Háaleitisbraut 28
108 Reykjavík
132,4 m2
Fjölbýlishús
413
664 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin