Rúnar Örn fasteignasali kynnir Túngötu 41, Eyrarbakka.
Rúmgott og vel skipulagt einbýlishús sem hefur verið mikið endurnýjað. Húsið er samtals 186,4 m² á 885 m² lóð, með rúmgóðum bílskúr og stórum suður-palli, gróinni lóð og gróðurhúsi.
Eignin er samtals 186,4 m², þar af er íbúðarhlutinn 129,3 m² og bílskúrshlutinn 57.1 m². Bílskúrshlutinn skiptist í 37,8 m² bílskúr og 8,1 m² herbergi með WC og sérinngangi / útgangi út í garð. Yfir hluta bílskúrsins er að auki 16,8 m² geymsluloft, sem er utan skráðrar fermetratölu. Í íbúðarhlutanum eru fjögur svefnherbergi. Að auki er 8,1 m² herbergi í bílskúrshlutanum, með sér WC og sérinngangi frá bakgarði, gólf flísalögð.
Húsið var upphaflega byggt árið 1980. Bílskúrshlutinn var fullgerð árið 2012 og í kjölfarið, um 2014, var íbúðarhúsið endurnýjað. Skipulagi var breytt, skipt um allar lagnir hússins, rafkerfi endurnýjað og allar innihurðir, innréttingar og gólfefni endurnýjuð. Eldhús, baðherbergi og þvottahús voru jafnframt endurgerð.
Nánari lýsing
Forstofa / anddyri er rúmgóð og flísalögð, með hita í gólfi og stórum og góðum skápum.
Stofa / borðstofa / eldhús. Bjart og rúmgott alrými, samtals um 44 m², þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast vel saman. Úr stofu er gengið beint út á stóran suðurpall. Innbyggt eldstæði og innrétting á sjónvarpsvegg. Harðparket á gólfum. Eldhúsið er rúmgott með góðri innréttingu og Siemens-heimilistækjum. Stór eyja með helluborði veitir gott vinnu- og geymslupláss. Hiti í gólfi.
Gangur er parketlagður og er með innbyggðum bókahillum. Engir þröskuldar eru í dyrum frá gangi.
Svefnherbergin eru fjögur í húshlutanum. Stærsta herbergið er rúmgott hjónaherbergi og önnur herbergi henta vel sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherberbergi er rúmgott og flísalagt, með hita í gólfi. Þar er góð vaskinnrétting, handklæðaofn, hornbaðkar, rúmgóð sturta og upphengt salerni.
Þvottahús flísar á gólfi, góð innrétting og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúrinn / bílskúrshlutann.
Bílskúr og herbergi + WC
Bílkúrshlutinn er samtals 57,1 m². Sjálft bílskúrsrýmið er 37,8 m², rúmgott og vel búið með góðu vinnu- og geymsluplássi. Þar er stór rafdrifin innkeyrsluhurð, um 3,6 m breið, epoxy á gólfi, vinnuborð, vaskur og fjöldi raftengla. Yfir hluta bílskúrsins er 16,8 m² geymsluloft, sem er utan skráðrar fermetratölu.
Inn af bílskúr er 8,1 m² herbergi. Við herbergið er lítið WC og sérinngangur frá bakgarði. Þetta gefur fjölbreytta möguleika á nýtingu, t.d. sem gestaherbergi, vinnuaðstöðu, eða herbergi fyrir eldri börn.
Lóð og útisvæði
Lóðin er 885 m², gróin og skjólgóð. Við suðurhlið hússins er stór sólpallur með heitum potti. Á lóðinni er einnig 7,6 m² garðskúr, með rafmagni og um 15 m² gróðurhús frá 2023. Lítill krakkakofi er einnig í einu horni garðsins. Góð og opin aðkoma er að húsinu með litlum palli við inngang og tvö stór, steinlögð bílastæði eru fyrir framan bílskúrinn.
Hér er um að ræða gott og mikið endurnýjað einbýlishús á góðum stað á Eyrarbakka. Húsið sjálft, auk bílskúrshlutans, býður upp á mikla möguleika varðandi notkun sökum stærðar og fjölda herbergja. Lóðin er einnig stór og gróin og sólpallur, heitur pottur og skemmtilegt gróðurhús í sólríkum bakgarði gera gott hús enn betra.
Nánari upplýsingar veitir:
Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 771-5600
runar@fastgraf.is