Fasteignaleitin
Skráð 5. maí 2026

Vitastígur 10

EinbýlishúsVestfirðir/Bolungarvík-415
228.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
292.267 kr./m2
Fasteignamat
47.850.000 kr.
Brunabótamat
100.850.000 kr.
Friðjón Örn Magnússon
löggiltur fasteignasali
Eignalisti
Byggt 1961
Garður
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2121687
Landnúmer
139416
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
1
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: OPIÐ HÚS FÖSTUDAGINN 10 JÚLÍ KL 12:15 - 13:00 !! Vel skipulagt sjö herbergja einbýlishús við Vitastíg 10 í Bolungarvík. Húsið er samtals 228,9 fm að stærð og þar af er skráður bílskúr 21,3 fm. Eignin skiptist í fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu, stórt anddyri og bílskúr á lóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is


Komið inn í stórt anddyri sem tengir saman báðar hæðir. Á gólfi er ljóst steinteppi og góðir fataskápar. Neðri hæðin skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu og þvottahús. Efri hæðin skiptist í stóra stofu og borðstofu, baðherbergi með sturtu, svefnherbergi þar sem útgengt er út á svalir og eldhús. Frístandandi bílskúr á lóðinni.

Neðri hæð:

Gengið niður nokkrar tröppur í anddyrinu. Fataskápar og steinteppi á gólfi í anddyri. Gengið þaðan inná parketlagðan gang. Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Tvö svefnherbergi eru stór og rúmgóð með fataskápum. Hin tvö eru minni og án fataskápa. Ljóst parket á gólfum og gólfhiti. Baðherbergið er rúmgott með baðkari og sturtu og stórri innréttingu. Spegill fyrir ofan skolvask og upphengt WC. Þvottahús er einnig rúmgott. Flísar á gólfi. Borðplata með skolvaski og góð innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötum.

Efri hæð:

Gengið upp nokkrar tröppur í anddyrinu. Í holinu á efri hæðinni eru einnig fataskápar og steinteppi á gólfi. Á efri hæðinni er eldhús, baðherbergi, stórt herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi, stofa og borðstofa.

Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Lítill borðkrókur og gert ráð fyrir frístandi ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi með gólfhita. Baðherbergi á gangi við hliðina á eldhúsinu. Ljósar flísar á veggjum og gólfi. Sturta, ljós innrétting með spegli fyrir ofan skolvask og upphengt WC. Svefnherbergið á annarri hæðinni er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi með gólfhita. Stofa og Borðstofa eru í sama rými. Gott pláss fyrir borðstofuborð og opin stofa. Parket á gólfi með gólfhita. Frístandandi bílskúr er lóðinni sem er án rafmagns og hita.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is



DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/07/202225.150.000 kr.52.000.000 kr.228.9 m2227.173 kr.
20/04/202118.950.000 kr.45.000.000 kr.228.9 m2196.592 kr.
30/04/201514.350.000 kr.23.000.000 kr.228.9 m2100.480 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lágseyla 12
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Lágseyla 12
Lágseyla 12
260 Reykjanesbær
228.3 m2
Einbýlishús
524
492 þ.kr./m2
112.300.000 kr.
Skoða eignina Smáratún 13
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Smáratún 13
Smáratún 13
225 Garðabær
229.1 m2
Einbýlishús
625
763 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Úugata 86
Bílskúr
Skoða eignina Úugata 86
Úugata 86
270 Mosfellsbær
234.5 m2
Einbýlishús
825
678 þ.kr./m2
159.000.000 kr.
Skoða eignina Hrauntunga 77
Hleðslustöð
Skoða eignina Hrauntunga 77
Hrauntunga 77
200 Kópavogur
214.3 m2
Raðhús
624
863 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin