Borgir fasteignasala kynnir eignina Mávahlíð 26, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 03-01, fastanúmer
203-0804 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Mávahlíð 26 er skráð 4ja herbergja risíbúð.Birt stærð 98.3 fm.
Í dag eru 2 svefnherbergi en búið er að opna á milli barnaherbergjanna en auðvelt gæti verið að fjölga þeim í 3 með því að loka aftur á milli barnaherbergjanna.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými.
Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Bjart eldhús með rúmgóðri innréttingu.
Baðherbergi endurnýjað árið 2013, er með sturtubaðkari og upphengdu salerni.
6,3 fm sérgeymsla í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver íbúð er með eigin þvottatæki.
Snyrtilegur sameiginlegur stigagangur.
Eftirsótt staðsetning í Hlíðunum, í göngufæri við miðbæ Reykjavíkur.
Stutt í skóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Helstu endurbætur
- 2013 – Baðherbergi endurnýjað.
Björt og rúmgóð risíbúð, möguleiki á þriðja svefnherbergi, endurnýjað baðherbergi og göngufæri við miðbæinn.