Miðgarður 11, Reykjanesbær
Eignasala kynnir glæsilegt og einstaklega vel viðhaldið 304,3 fm einbýlishús með tveimur bílskúrum á frábærum stað í Reykjanesbæ.
Húsið stendur innst í botnlanga á rólegum og skjólgóðum stað þar sem næði og friðsæld eru í fyrirrúmi. Miðgarður 11 er efsta húsið í götunni og nýtur einstakrar staðsetningar við útivistarsvæði bæjarins. Rétt fyrir ofan húsið taka við vinsælir göngustígar, fallegt náttúruumhverfi og frisbígolfvöllur sem gerir staðsetninguna sérstaklega eftirsótta fyrir fjölskyldur og útivistarfólk.
Samkvæmt HMS er eignin alls 304,3 fm, þar af 194,8 fm íbúðarhús, 42,3 fm garðskáli, 53,5 fm sambyggður bílskúr og 56 fm tvöfaldur stakstæður bílskúr. Eign sem býður upp á mikla möguleika fyrir stórar fjölskyldur, atvinnurekstur heima eða þá sem vilja rúmgóð aukarými.
Nánari lýsing
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi. Gestasnyrting hefur verið endurnýjuð og er snyrtileg og vel búin.
Frá forstofu er gengið inn í þvottahús með góðri innréttingu og miklu skápaplássi. Þaðan er útgengi á skjólgóða verönd með heitum potti.
Aðalrými hússins samanstendur af björtu og rúmgóðu alrými með stofu, borðstofu, sólstofu og eldhúsi. Í stofu er arinn sem setur hlýlegan svip á rýmið. Gólfefni í stofu, borðstofu, holi og herbergjum er gegnheil eik í fallegu fiskibeinamynstri.
Glæsilegur garðskáli, um 42 fm að stærð, var byggður við húsið árið 1999. Þar er gólfhiti og stórir gluggafletir sem skapa einstaka tengingu við garðinn og útisvæðin. Rennihurð er úr sólstofu út á verönd.
Eldhúsið er vel skipulagt með fallegri innréttingu, steinborðplötum og vönduðum Miele heimilistækjum. Tvöfaldur ísskápur fylgir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú í dag en áður voru þau fimm. Auðvelt er að breyta skipulaginu aftur og fjölga herbergjum eftir þörfum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergið var endurnýjað árið 2023 og er einstaklega rúmgott með stórum sturtuklefa. Frá baðherbergi er útgengt á verönd.
Innangengt er í 53,5 fm sambyggðan bílskúr sem í dag er nýttur sem vinnustofa og fjölnota rými. Innst í honum er afstúkað herbergi og býður rýmið upp á fjölmarga möguleika, meðal annars fyrir fleiri svefnherbergi, skrifstofu eða tómstundaaðstöðu.
Auk þess er á lóðinni 56 fm tvöfaldur stakstæður bílskúr með tveimur hurðum og geymslulofti.
Lóð og útisvæði
Lóðin er einstaklega falleg, gróin og vel hirt. Sólpallar eru beggja vegna hússins sem tryggir sól frá morgni til kvölds. Skjólgóð verönd með heitum potti skapar notalega umgjörð um útiveru allt árið um kring.
Bílastæði eru rúmgóð við húsið og hitalagnir eru í bílaplani. Þá eru einnig góð bílastæði í enda götunnar.
Helstu endurbætur
Þak endurnýjað árið 2016.
Vatns- og raflagnir endurnýjaðar á árunum 2012–2025.
Hitaveitugrind endurnýjuð árið 2023.
Baðherbergi endurnýjað árið 2023.
Gestasnyrting endurnýjuð árið 2025.
Eldhústæki endurnýjuð á síðustu árum.
Hér er um að ræða einstaklega vandaða fjölskyldueign á einum eftirsóttasta stað Reykjanesbæjar þar sem náttúra, útivist, næði og þjónusta fara saman. Eign sem hefur fengið viðhald í gegnum tíðina og býður upp á mikla möguleika fyrir næstu eigendur.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420607 eða tölvupóstur julli@eignasala.is og joi@eignasala.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.