Fasteignaleitin
Skráð 1. júní 2026

Grenilundur 4

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
90.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
62.900.000 kr.
Fermetraverð
695.796 kr./m2
Brunabótamat
44.250.000 kr.
Byggt 2004
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22734623
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Kasa fasteignir 461-2010.

Grenilundur 4, íbúð 101. Björt og vel skipulögð 3 herbergja 90,4 fm íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi á góðum stað í Lundarhverfi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, 2 svefnherbergi og rúmgóða geymslu með litlum glugga. 


Forstofa: Flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur.
Stofa: Rúmgott rými með parketi á gólfum sem nýtist sem stofa og borðstofa. Úr stofu er gengið út á steyptan pall í suður.
Eldhús: Parket á gólfi og flísar á milli skápa. Hvít innrétting með plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er hvít innrétting, salerni, handklæðaofn og sturta.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfum. Stærra herbergið er með rúmgóðum fataskáp. 
Þvottahús er með flísum á gólfi og hvítri innréttingu með vaski og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er með flísum á gólfi og litlum glugga og gæti því nýst sem herbergi eða skrifstofa.

- Eignin á hlutdeild í tveimur sameiginlegum geymslum
- Gott og barnvænt hverfi
- Stutt í leik-, grunn- og framhaldsskóla

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Kasa Fasteignir
http://www.kasafasteignir.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmastígur 3
Efsta hæð
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
32
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Trönudalur 1 (202)
Efsta hæð
Opið hús:14. sept. kl 17:00-17:30
Trönudalur 1 (202)
260 Reykjanesbær
90.4 m2
Fjölbýlishús
313
663 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 8 - Gott verð
Bílastæði
Áshamar 8 - Gott verð
221 Hafnarfjörður
72.6 m2
Fjölbýlishús
211
846 þ.kr./m2
61.400.000 kr.
Skoða eignina Blásalir 19
Skoða eignina Blásalir 19
Blásalir 19
201 Kópavogur
97 m2
Fjölbýlishús
312
875 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin