Fasteignaleitin
Skráð 11. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - Lomas de Cabo Roig

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
111 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
72.350.000 kr.
Fermetraverð
651.802 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílastæði
Sérinng.
Fasteignanúmer
101080526
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *STÓRGLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Í LOMAS DE CABO ROIG* *EIGN ÞAR SEM EKKERT HEFUR VERIÐ TIL SPARAÐ Í GÆÐUM OG ÞÆGINDUM* *3 SVEFNH. OG 3 BAÐH.* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM* *STÓR SUÐURGARÐUR, SVALIR OG STÓRAR ÞAKSVALIR MEÐ ÚTIELDHÚSI* *SÉR STÆÐI Á LÓÐ, UPPHITUÐ EINKASUNDLAUG MEÐ RAFMAGNSLOKUN* 

Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í aðalrými eignarinnar sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu. Eldhús er með fallegri innréttingu, innfelldum ísskáp og uppþvottavél, vínkæli og góðu skápaplássi. Frá eldhúsi og stofu eru nokkrir útgangar út í sólríkan garð tli suðurs. Þar er önnur borðstofa með markísu, og nýtist því vel allt árið um kring. Garðurinn er sólríkur enda snýr hann í suður, og þar eru markísur fyrir þá sem vilja vera í skugga yfir heitustu mánuðina. Sundlaugin er upphituð, og með rafmagnslokun sem veitir mikið öryggi þegar börn eða dýr eru í garðinum. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með mjög góðu skápaplássi, ásamt baðherbergi með sturtu. Einnig er á hæðinni geymsla/þvottahús með nýlegri þvottavél sem fylgir. Gengið er upp á efri hæð og þar eru tvö svefnherbergi til viðbótar, bæði með sér baðherbergi með sturtu og glugga, og útgengi út á suðursvalir. Frá efri hæð er gengið upp á þaksvalirnar, og þar er svo sannarlega hægt að njóta alls sem Spánn hefur upp á að bjóða. Á þaksvölunum er útieldhús, geymsla, og pergola sem kemur sér vel í sólinni. Útsýnið af þaksvölunum er stórfenglegt.
Um er að ræða eign þar sem ekkert hefur verið til sparað. Að utan er búið að mála með hágæða málningu sem gerir allt viðhald auðveldara, og búið er að flísaleggja veggi að utan að hluta sem gefur eigninni fallegt útlit, og enn minna viðhald. Allir gluggahlerar eru rafdrifnir, búið er að skipta um aircon og er því miðstýrt í gegnum síma, og hljóðlausar viftur eru í svefnherbergjum og stofu. Vatnsfilter er við aðalinntak fyrir vatn. Gólfhiti er á baðherbergjum og í stofu. 
Húsið stendur við lokaða götu með myndavélasíma, sem veitir öryggi og næði. Sérstæði á lóð.
Eignin afhendist fullbúin með húsgögnum. Húsið er 111 fm. auk mikils útisvæðis, stór garður með sundlaug, svalir og stórar þaksvalir. Lóðin er 201 fm.

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869 
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is , sími 00354 893 2495


Uppgötvaðu sjarma Lomas de Cabo Roig á sólríku Costa Blanca-ströndinni á Spáni. Svæðið er þekkt fyrir afslappað miðjarðarhafslíf, fallegar strendur í nágrenninu og frábært úrval veitingastaða, golfvalla og verslana. Stutt í vinsælu verslunar- og afþreyingarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Hér nýtur þú sólskins allt árið um kring í friðsælu og eftirsóttu umhverfi. Fullkominn staður fyrir sumarhús, fjárfestingu eða varanlegt heimili við spænsku ströndina.
Frábær staðsetning í göngufæri frá ótal verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir golfvellir í næsta nágrenni. Stutt á fallega strönd. Um 50 mín akstur frá flugvellinum í Alicante.

Verð 499.000 Evrur eða 72.350.000 ISK (gengi 1Evra=145 ISK.) 

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 12%.

Eiginleikar: bílastæði, einkasundlaug,  sér garður, air con, húsgögn, suðurgarður,
Svæði: Costa Blanca, Cabo Roig, Lomas de Cabo Roig,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
101080526

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnuflöt 5
Bílskúr
Skoða eignina Sunnuflöt 5
Sunnuflöt 5
210 Garðabær
254 m2
Einbýlishús
744
1059 þ.kr./m2
269.000.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 26A
Skólavörðustígur 26A
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
839 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Skoða eignina Bjarmastígur 3
Bjarmastígur 3
600 Akureyri
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
590 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Skipagata 7
Skoða eignina Skipagata 7
Skipagata 7
600 Akureyri
104 m2
Fjölbýlishús
412
720 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin