Fasteignaleitin
Skráð 10. júlí 2026

Laufásvegur 39

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
130.6 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
1.071.210 kr./m2
Fasteignamat
110.650.000 kr.
Brunabótamat
83.050.000 kr.
Mynd af Aðalsteinn Jón Bergdal
Aðalsteinn Jón Bergdal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1901
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2007317
Landnúmer
102162
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Gler endurnýjuð 2014 til 18 og nýr austurgluggi á baðherbergi.
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Ekki galli, en gólfefni að koma á tíma og þarf fljótlega að slípa/lakka eða skipta.
Seld með fyrirvara !

Aðalsteinn Jón Bergdal og Trausti fasteignasala kynna sjarmerandi 3ja hæða einbýlishús með fallegum einkagarði á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur að Laufásvegi 39. Húsinu hefur verið vel við haldið og endurnýjað verulega á síðustu árum með virðingu fyrir uppruna þess.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.   Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign.
Samkvæmt HMS er eignin skráð 130,6 fm.


Nánari lýsing:
1.    Hæð     
Stórt svefnherbergi veggir og loft klætt með gipsplötum, kalkmálað og með stórum fataskáp. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi
Baðherbergi veggir og loft klætt votrýmis-gipsplötum. Innangengt úr svefnherberginu, góðinnrétting með marmara borðplötu og -vaski, upphengdu salerni, walk-in sturtu, flísalagt gólf og að hluta til á veggjum sem eru hvít kalkaðir þar sem ekki eru flísar. Gluggar á þrjár hliðar.
Þvottahús og geymsla, rúmgott rými með sér inngangi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara, snúrur. Málað steingólf.
2.    Hæð     Aðalinngangur í húsið, gengið upp tröppur úr garði. Fataskápur við inngang.
Eldhús er samliggjandi stofurýmum, góð eldhúsinnrétting, marmara borðplata, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, gaseldavél með rafmagnsofni. Parket á gólfi.
Borðstofa/stofa samtengt eldhúsi, bjartar með birtu frá gluggum sem snúa í þrjár áttir. Parket á gólfi
Svefnherbergi er nú notað sem sjónvarpsstofa og bókaherbergi. Gluggar á tvo vegu. Parket á gólfi.
Af þessari hæð úr alrýminu er stigi niður á 1. hæð og upp á 3. hæð.
3.    Hæð undir súð.  Gólfflötur töluvert stærri en gefið er upp í fasteiganyfirliti.
Stofa sem er notuð sem vinnuherbergi í dag. Tveir góðir gluggar og góðir skapar undir súð. Parket á gólfi
Svefnherbergi, tveir þakgluggar. Parket á gólfi.
Snyrting með vaski og salerni, góðum glugga. Parket á gólfi.
Garður:  Afgirtur, skjólgóður og sólríkur með nýlegri hellulögn, fjölskrúðugum gróðri, grasflöt og snúrustaurum. Góður pallur við inngang.

Helstu framkvæmdir síðustu ár:
Árið 2014: Eldhús algjörlega endurnýjað. Loft og veggir í svefnherbergi á 1. hæð klæddir gipsplötum og málað með hvítri kalkmálningu og  smíðaður veggfastur fataskápur. Baðherbergi á 1. hæð algjörlega endurnýjað, það var klætt vatnsþolnum gipsplötum, málað með hvítri kalkmálningu, allar innréttingar sérsmíðaðar, gólf flísalagt og að hluta veggir, sturtuklefi með nýjum tækjum og sturtugleri.
Árið 2016: Hellur lagðar í norð-austur horni garðsins. Trjástubbar og rætur fjarlægt. Snúrustaurar færðir úr miðjum garði afturfyrir hús.
Árið 2019: Smíðaður nýr pallur með handriði við útidyr. Skipt um allar gluggakrækjur og stormjárn.
Árið 2020: Ný og endurnýjuð hellulögn í vesturhluta garðs, ásamt skjólvegg fyrir sorp. Tvö útiljós sett í hellulögn og ný úti veggljós.
Árið 2021: Allt húsið málað að utan, veggir, þak og gluggar. Þakrennur og niðurfallsrör endurnýjuð. Áfellur settar á húsmæna á þaki.
Árið 2025: Snjógildrur settar á þak.

Fallegt og sjarmerandi einbýli á þessum vinsæla stað í miðborginni.  Stutt í alla þjónustu og Hljómskálagarðurinn og allt það skemmtilega sem miðbærinn hefur upp á að bjóða í göngufæri. Stutt í leik-, grunn- og menntaskóla.

Nánari upplýsingar um eignina veita Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is og Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is
 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/01/201445.600.000 kr.53.000.000 kr.130.6 m2405.819 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sæból 7
Skoða eignina Sæból 7
Sæból 7
350 Grundarfjörður
133.2 m2
Raðhús
413
413 þ.kr./m2
55.000.000 kr.
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ísleifsbúð 17
Ísleifsbúð 17
815 Þorlákshöfn
153.9 m2
Raðhús
413
528 þ.kr./m2
81.200.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 49
Bílskúr
Opið hús:23. júlí kl 19:00-19:30
Skoða eignina Barmahlíð 49
Barmahlíð 49
105 Reykjavík
137.5 m2
Hæð
413
800 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Hafnartún 32
Skoða eignina Hafnartún 32
Hafnartún 32
580 Siglufjörður
111 m2
Einbýlishús
423
405 þ.kr./m2
45.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin